miðvikudagur, ágúst 04, 2004

Djöfulls pakk

Beria er brjálað. Beria fyrirlítur ýmislegt sem viðgengst í skjóli þess að vera á vegum ríkisins. Læknar sem eru með meira en milljón á mánuði eru víst um 100 talsins - það er bara fáránlegt. Millistjórnendur og yfirmenn ríkisútvarpsins eru líka afurð fáránleikans. Megi skynsemin heimsækja þetta fólk einn daginn og gera úr því eitthvað nytsamlegt.

miðvikudagur, júlí 28, 2004

Radiohead i Montriuox er stuð

Hvaða rugl er á þessu bloggi annars? Þetta virkar eitthvað tríst format.


Það leit í það minnsta þannig út og Beria diggar stuðið. Þetta verður líka í sjónvarpinu um Verslunarmannahelgina og þá verður víst rigning á landinu hér Sunnan og Vestanlands. Ætli nokkur heilvita manneskja treysti sér á þjóðvegi landsins eða á útíhátíðir? 

 

Það er annars fínt stuð á mönnum og konum. Beria er þreytt.

  

 




miðvikudagur, júlí 21, 2004

Að þurfa að gleypa eitthvað oní sig

Af mbl.is: "Davíð Oddsson, forsætisráðherra, var í nótt fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús vegna verkja í kviðarholi og er hann þar nú til rannsóknar, að því er kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu" - samkvæmt heimildum Beriu gekkst hann undir skurðaðgerð á Landspítala háskólasjúkrahúsi fyrri stundu þar sem fjölmiðlafrumvarpið var fjarlægt úr kviðarholi forsætisráðherrans......

þriðjudagur, júlí 20, 2004

Á Grænuborg haustið 1972

Ekki taka skófluna, ég á hana! (Frekjulegur tónn 4 ára hnokka)
Nei, ég á hana. (Sperrt svar 5 ára telpu)
Víst! (Ógnandi drengur)
Mamma! (Sorgmædd stúlka)
Pabbi minn er stór! (Sigrihrósandi drengur)
 
Svona var þetta þá og svona er þetta enn. Það sem er magnaðast í þessu er að strákarnir og stelpurnar sem slógust fyrir 30-50 árum í sandkössum eru enn að slást og abstrakthugsuninn virðist aldrei hafa náð til þeirra.
 
Í morgun drógu þeir frumvarpið til baka og eins og venjulega höfðu þinglegar stofnanir ekkert með það að gera. Alsherjarnefnd er tilbúningur einn og fullkomin tímasóun. Litli strákurinn sem tapaði skóflunni sinni gat ekki sætt sig við að málið færi svona. Hann heimtaði að annar strákur fengi líka á baukinn. Forsetinn fær því ekki að leika með næstu vikurnar. Þeir ætla að taka skófluna hans líka!
 
Og fyrir þetta fá strákarnir borgað í kringum milljón á mánuði.

mánudagur, júlí 19, 2004

Beria - óprúttin og sannleiksþyrst

Davíð er að veiða - þess vegna er ekki hægt að halda fund hjá Alsherjarnefndinni á föstudegi, og ekki á laugardegi, sunnudegi eða mánudagsmorgni. Það er ekki hægt að funda fyrr en klukkan fimm.... fimm???? Jú sjáiði til. Skiptin á ánni fara ekki fram fyrr en klukkan eitt og svo tekur þrjúkortér að bruna í bæinn. Skutla Ástríði heim (þ.e. ef hún fékk að fara með) og jafnvel skipta um föt. Hitta Dóra klukkan hálf þrjú... nú ef Dóri er ekki til í að lúffa þá má tilkynna það klukkan fjögur. Annars má tilkynna eitthvað annað klukkan hálf fimm... en allavega þá má fundurinn byrja klukkan fimm.
 
Hvað Dóra varðar þá er vert að benda á það að nú á hann u.þ.b. fjóra milljarða í útgerðarfyrirtæki. Frá því í síðustu viku má tala um það... eða er það ennþá smekklaust að vera að ræða þetta?
 
sagði Beria og fékk sér sopa.....

föstudagur, júlí 16, 2004

Ali kynningarfulltrúi

Ríkisstjórnin stendur traustum fótum
 
Þetta mál er nú ekki það erfiðasta sem við höfum lent í
 
Samstarfið hefur aldrei verið betra
 
Það er enginn ágreiningur
 
Þeir sem tala um að samstarfið sé í uppnámi hljóta að vera að tala um aðra ríkisstjórn
 
Já, þær eru frábærar yfirlýsingarnar sem velta frá ráðherrum og þingmönnum um rólegheitin og hið farsæla ríkisstjórnarsamstarf. Minnir óneitanlega á PR-Ali þar sem hann stóð við Tigrisfljótið með ameríska skriðdreka í bakgrunninum og sagði varnirnar halda og innrásarliðið væri á flótta. Brosleg eru viðbrögðin - en þeir sem hafa stjórnað allt of lengi verða stundum blindir á nánasta umhverfi sitt og sjá ekki skóginn fyrir trjánum. Ali er ekki sá eini; Neró, Napóleon o.fl. voru einnig haldnir slíkum Megallóisma.
 
Beria fór einmitt flatt í samstarfi sínu við slíkan mann um miðja síðustu öld....
 
 

fimmtudagur, júlí 15, 2004

lítið mál - stórt mál???

Eins og Beria benti á hér á undan talaði félagsmálaráðherra um það hversu lítið mál þetta fjölmiðlamál væri. Þess vegna þótti Beriu það kómískt að heyra í unglingnum Bjarna Benediktssyni í fréttum dagsins. Hann talaði um að eðlilegt væri þegar svona stór um umdeild mál væru í nefnd að þá væri fjallað vel og lengi um þau. Hvernig má það vera að samtarfsflokkarnir geta ekki einu sinni verið sammála um það hvort þetta fjölmiðlamál sé stórt eða lítið?

Eins er merkilegt að um leið og stjórnarliðar hrópa á málefnanlega umræðu, hrópa á að umræðan fari að snúast um frumvarpið, segir forsætisráðherra að það þurfi ekki að ræða það því umræðan um þetta tiltekna mál hafi þegar farið fram.

Jah hvað á Beria að halda - sæl að sinni

Árni og vinur hans Guðjón

Það var nokkuð athyglisvert að hlusta á þá fóstbræður Guðjón Ólaf í Kastljósinu og Árna Magnússon í dægurmálaútvarpinu í gær. Guðjón var reyndar með Árna í dægurmálaútvarpinu en lippaðist niður í ekki neitt. Árni sagði, eins og Guðni Ágústson, að fjölmiðlafrumvarpið væri ekki stórt mál - ríkisstjórnin hefði sko séð það svartara. Það hlýtur að vera mjög erfitt að vera í þessari ríkisstjórn fyrst þetta er bara smámál.

Guðjón fóstbróðir hefur algjörlega lekið niður á síðustu dögum. Í Kastljósinu tók hann Björn og Davíð upp á sína arma og sagði: Forsetinn hefur gengið til liðs við stjórnarandstöðuna í þessu máli. Er það bara Beria sem er ekki á eitt sátt við svona árásir?

Beria tekur hlé

Það vaknaði í morgun

Eins og Bubbi sagði vaknaði Beria í morgun. Las blöðin og komst að því að margur er maðurinn heimskur. Hannes Gissurarson réðst harkalega á Ólaf Hannibalsson í gær - í svörtum ramma í Mogganum - og sagði Ólaf hafa verið á jötunni hjá Friðriki Pálssyni. Það er sprenghlægilegt að hugsa til þess að Hannes, sem hefur verið áskrifandi styrkja og bitlinga frá Sjálfstæðisflokknum í áratugi, skuli koma fram og benda á aðra menn. Hann og Júlli Hafstein hafa þegið tugi milljóna sl. ár frá hinu opinbera. Annar svona tvister er hann Jón Steinar Gunnlaugsson sem sakar lögfræðinga að blanda pólitík og stjórnmálum saman. Beria heldur að þetta sé hlægilegasta ásökun vorra tíma....

Segir Beira í dag